Skilmálar gjafabréfa Bláa Lónsins

  • Gjafabréf fyrir upphæð gilda í 4 ár frá útgáfudegi.
  • Gjafabréf fyrir upplifun gilda í 1 ár frá útgáfudegi. Að ári liðnu gildir gjafabréfið sem inneign og er þá gilt í 4 ár frá útgáfudegi. Bláa Lónið áskilur sér rétt til að breyta vöruframboði og verði á gildistímanum.
  • Gjafabréf fást ekki endurgreidd af Bláa Lóninu.

Bláa Lónið ber ekki ábyrgð á tjóni viðskiptavina sem hlýst af þjófnaði gjafabréfa eða hvers konar óheimilli ráðstöfun eða notkun gjafabréfa sem greiðslumáta eftir útgáfu þeirra.

Öll gjafabréf má nýta sem greiðslu upp í aðra þjónustu Bláa Lónsins, ef um dýrari upplifun er að ræða, og skal þá greiða mismuninn. Gjafabréf gilda í Bláa Lóninu, á Retreat Spa, hótelum Silica og Retreat, veitingastöðunum Lava og Moss og í öllum verslunum Bláa Lónsins. Ekki er hægt að nota gjafabréf til að kaupa húðvörur í vefverslun en hægt er að nota þau í verslunum okkar í Bláa Lóninu, Kringlunni, Leifsstöð og við Laugaveg 15.

Bláa Lónið Norðurljósavegur 9 240 Grindavík Sjá á korti

+354 420 8800

Hafa samband

Mín bókun