Tímabundin lokun
22. nóvember 2024
Undanfarna mánuði höfum við verið minnt á krafta náttúrunnar og þau áhrif sem þeir hafa óumflýjanlega á okkur öll. Við höfum gripið til tímabundinna lokana á þessu tímabili en líka nýtt tímann til þess að endurskoða viðbragðsáætlanir og bæta innviði svæðisins.
Vegna aukinnar skjálftavirkni og eldgoss við Sundhnúksgígaröðina voru allar starfstöðvar Bláa Lónsins í Svartsengi rýmd í gær, miðvikudaginn 20. nóvember. Lokað verður út fimmtudaginn 28. nóvember og verður staðan þá endurmetin.
Við munum hafa samband við alla gesti sem eiga staðfestar bókanir á meðan lokuninni stendur. Gestir geta breytt bókun eða afbókað hér.
Við höldum áfram að fylgja tilmælum yfirvalda til hins ítrasta og fylgjumst vel með stöðunni í samstarfi við yfirvöld og sérfræðinga. Við vinnum ötullega að því alla daga að tryggja öryggi starfsfólks og gesta, lærum af reynslunni og nýtum nýja þekkingu á uppbyggilegan hátt. Upplýsingar um stöðuna á Reykjanesi, loftgæði og aðstæður svæðisins má nálgast hjá Veðurstofu Íslands, Almannavörnum og á Loftgæði.is.